Dagana 22. - 26. febrúar stendur skátahreyfingin fyrir góðverkadögum um land allt undir yfirskriftinni "Góðverk dagsins". Hugmyndin er að árlega séu haldnir sérstakir góðverkadagar með virkri þátttöku allra landsmanna.
Starfsfólk og börn í Klettaborg taka þátt í góðverkadögunum með fræðslu, umræðum og verkefnum.
Foreldrar eru einnig hvattir til að taka þátt og er bent á heimasíðuna www.godverkin.is þar er m.a. hægt að skrá góðverkin sín.