Í tilefni af tannverndarviku sýndu starfsmenn leikskólans leiksýningu um Karíus og Baktus við mikinn fögnuð stórra og smárra. Það voru Hugrún og Anna Stína sem léku Karíus og Baktus og Rannveig var sögumaður, hljóðmaður og tæknimaður :-) Í lok sýningarinnar sagði eitt barnið: "o, af hverju var þetta svona stutt....", sem sagt mikið gaman, sjá myndir.