Á morgun, fimmtudag, er alþjóðlegi bangsadagurinn, ákveðið hefur verið að hafa líka náttfatadag þannig að allir mega koma með bangsa og í náttfötum.
Aljóðlegi bangsadagurinn er 27. október ár hvert en það er fæðingardagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Sagan segir að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Washington Post birti skopmynd af þessu atviki sem vakti mikla athygli. Búðareigandi einn í Brooklyn, New York varð svo hrifinn af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann seldi sem "Bangsann hans Teddy" (Teddy's Bear) og varð strax mjög vinsæll.
Bangsar eru enn þann dag í dag eitt vinsælasta leikfangið í heiminum og eru fyrir marga tákn öryggis og vellíðunar líkt og andrúmsloftið sem við reynum daglega að skapa börnunum hér í Klettaborg.