Þessa dagana er sérstök gleðivika í leikskólanum þar sem eitthvað öðruvísi og skemmtilegt er gert á hverjum degi. Lögð er áhersla á litina og börnin koma í einhverju í lit hvers dags, gaman er að sjá alla í sama litnum og í dag er græn stemming í leikskólanum.
Að auki er leyni-vinavika hjá starfsfólki leikskólans, mikið fjör og gaman :-)