Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
27. janúar 2010 12:07

Myndlistarsýning í Hyrnutorgi

Börnin í Klettaborg verða með myndlistarsýningu í Hyrnutorgi næstu þrjár vikur í tilefni af degi leikskólans þann 6. febrúar, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan.
Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta-og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

Að auki munum við í Klettaborg hafa opið hús föstudaginn 5. febrúar kl. 9.00-10.30, söngstund í sal kl. 10.15 - allir velkomnir.