Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Atburðadagatal
27
28
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður
Sumarhátíð og fleira 2010
30. júní 2010

Sumarleyfi í Klettaborg

Leikskólinn verður lokaður 1. júlí - 4. ágúst vegna sumarleyfa og opnar aftur fimmtudaginn 5. ágúst.

Bestu óskir um gott og gleðilegt sumarfrí.

meira...
15. júní 2010

Sumarhátíð leikskólans

 

Á morgun verður árleg sumarhátíð í leikskólanum, búið er að panta sól og gott veður J

 

Dagskrá:

Kl   9.00          Undirbúningur/andlitsmálun o.fl.

Kl.  9.45           Ávaxtastund

Kl. 10.00         Skrúðganga, (gengið niður að Dvalarheimili aldraðra þar sem sungin verða nokkur lög)

                      Leikir og leiktæki á útisvæði leikskólans

                      Brekkusöngur

Kl. 11.30         Pylsupartý og svali

Kl. 13.00         Leikir og leiktæki á útisvæði leikskólans

 

Vinsamlega athugið að mikilvægt er að börnin mæti í leikskólann í síðasta lagi kl. 9.30.

meira...
9. júní 2010

Fréttaskot

Fréttir um það helsta sem framundan er má nálgast hér

meira...
7. júní 2010

Hjóladagur

Á morgun, þriðjudag, verður hjóladagur í Klettaborg. Börnin koma með hjól og hjálm að heiman, hjólað verður á bílaplaninu.

Lögreglan kemur í heimsókn kl. 10.30 og 13.30 til að spjalla við börnin og gefa góð ráð. 

meira...
25. maí 2010

Hvolpar í heimsókn

Í síðustu viku komu 5 hvolpar í heimsókn. Guðríður Guðjónsdóttir  er eigandi hvolpana og jafnframt amma tveggja barna í leikskólanum, þökkum við kærlega fyrir heimsóknina sem vakti mikla ánægju hjá börnunum.

meira...
14. maí 2010

Kind með þrjú lömb

Í dag fengum við í Klettaborg skemmtilega heimsókn. Fyrir hádegi komu Ólöf Sumarliða og Sigurbergur Pálsson með þrílembda kind frá Ferjubakka sem sett var í eitt horn útisvæðisins. Bæði börn og fullorðnir höfðu mjög gaman af.

meira...
11. maí 2010

Útskrift elstu barna

Í dag verður formleg útskrift hjá börnum f. 2004. Athöfnin hefst stundvíslega kl. 18.00 í sal Menntaskóla Borgarfjarðar og munu börnin sýna leik-, söng- og dansatriði. Foreldrar og aðrir áhugasamir eru velkomnir.

meira...
26. apríl 2010

Útskriftarferð í Vatnaskóg

Næstkomandi föstudag fara elstu börnin ásamt starfsfólki í útskrifarferð í Vatnaskóg með leikskólunum á Varmalandi, Hnoðrabóli og Andabæ. Lagt verður af stað kl. 9.15 og komið til baka ca. kl. 16.45, nánari upplýsingar má nálgast hér 

meira...
20. ágúst 2010