Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa.
Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Lýðheilsustöð, nú embætti landlæknis, gaf út í fyrsta skipti árið 2008 ítarlegar ráðleggingar um hreyfingu. Börnum og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur á dag.
Klettaborg hefur skráð sig í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins. Tvö lið eru skráð með 10 liðsmenn hvort, við hvetjum alla til að taka þátt í lífshlaupinu.
Nánari upplýsingar á lifshlaupid.is